Skoða bók

Þar sem vindurinn dansar

Strömberg, Louise  

Urður Snædal  

Sara Dögg Ásgeirsdóttir  

Skerjagarðsserían  

3 

13:21 klst.  

2026  

Tove hefur starfað hjá sama forlaginu í sautján ár og unnið sig upp í stöðu útgáfustjóra. Þegar nýir eigendur taka óvænt við fyrirtækinu breytist allt. Í hita augnabliksins segir hún upp og skyndilega er tilveran komin úr skorðum. Sonurinn er fluttur að heiman, sorgin eftir andlát móður hennar er enn sár og í fyrsta sinn í langan tíma veit Tove ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún leitar skjóls í gömlu húsi móður sinnar í í sænska skerjagarðinum við Arkösund, þar sem hún reynir að finna aftur fótfestu. Á háalofti hússins bíður hennar óvænt uppgötvun: gömul dagbók sem tilheyrði Märtu frænku hennar. Dagbókarfærslurnar leiða Tove aftur í tímann, til Ameríku í upphafi síðustu aldar, þar sem hörmulegur bruni markaði upphaf dularfullrar ­atburðarásar. Eftir því sem Tove kemst nær sannleikanum um örlög Märtu breytist sýn hennar á eigið líf. Hrífandi skáldsaga um fjölskylduleyndarmál, missi og von – og hugrekkið sem þarf til að þora að velja nýja leið.  

Ljúflestrarbækur Skáldsögur Sænskar bókmenntir Ástarsögur Þýðingar úr sænsku