Skoða bók

Bústaðirnir

Theorin, Johan  

Elín Guðmundsdóttir  

Jóhann Sigurðarson  

14:00 klst.  

2026  

Í dimmum skógum sænsku Smálandanna, á bökkum stöðuvatns sem nefnist Råsjön-, er gamalt sumarbústaðahverfi. Eitt sinn var þar fjölmenni á sumrin, fólk synti áhyggjulaust í vatninu, baðaði sig í sólinni og dvaldi úti á björtum sumarnóttum. En nú standa litlu rauðu bústaðirnir auðir og yfirgefnir, enginn kemur þangað lengur til dvalar. Nema Pernilla Stål. Hún kemur á hverju hausti til að sefa óróann sem hefur grafið um sig innra með henni frá því hún upplifði dauðsföllin þarna á unglingsaldri. En þetta haust er Pernilla ekki einsömul... Hrollvekjandi spennusaga þar sem skuggar fortíðar og gamlar sagnir öðlast líf.  

Hrollvekjur Norrænar spennusögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku