Skoða bók

Tveir mánuðir á Íslandi 1874

Nordau, Max  

Guðmundur J. Guðmundsson  

Pétur Eggerz  

04:53 klst.  

2026  

Sumarið 1874 kom ungur blaðamaður að nafni Max Nordau til Íslands til að fylgjast með þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar. Hápunktur ferðarinnar var þjóðhátíðin á Þingvöllum þegar Kristján IX Danakonungur afhenti Íslendingum stjórnarskrá. Nordau var beittur penni, glöggur á hið spaugilega og óhræddur við að fella dóma um það sem fyrir augu bar, oft með vægðarlausri kaldhæðni. Hann lýsti bæjarlífinu í Reykjavík fyrir lesendum sínum, húsakosti landsmanna, klæðnaði, matarvenjum, útliti þeirra og skapgerð. Hann dáðist að ýmsu í fari þjóðarinnar en hneykslaðist á öðru og dró hvergi undan þegar honum virtist eitthvað frumstætt, sérkennilegt eða hlægilegt. Úr varð litrík og nærgöngul mynd af landi og þjóð, séð með augum menntaðs Evrópumanns á 19. öld, sem birtist hér í fyrsta sinn á íslensku. Guðmundur J. Guðmundsson íslenskaði og skrifaði inngang.  

19 öld Ferðalög Ferðasögur Ísland Þjóðhátíðir Þýðingar úr þýsku