Skoða bók

DómsDagur

Bergrún Íris Sævarsdóttir  

Bergrún Íris Sævarsdóttir  

Dagarnir  

4 

02:43 klst.  

2026  

Vinsamlegast hafið í huga að bókin er fyrir unglinga og eldri lesendur en hvorki ætluð börnum né viðkvæmum sálum. Blóðþyrstu mannæturnar Dagur og Ylfa eru á flótta undan Interpol ásamt læknanemanum Inga Birni. Þegar hungrið vaknar er aðeins ein leið til þess að seðja það! Flóttinn verður að blóði drifinni Evrópureisu með viðkomu í líkbrennslu í Stuttgart, útsýnisturni í Svartaskógi og baðhúsi í Búdapest. VARÚÐ! EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! Bókin inniheldur blóð og innyfli en einnig erótík og blauta kossa í formi trylltra teikninga eftir Simma Breiðfjörð. Lestu líka Veikindadag, Nammidag og Skuldadag - en hafðu í huga að þær bækur eru ekki heldur fyrir viðkvæma!  

Hrollvekjur Skáldsögur Ungmennabókmenntir (skáldverk) Ungmenni Íslenskar bókmenntir