Skoða bók
Skugginn
06:09 klst.
2026
Dögg er nýflutt í gamalt hús ásamt mömmu sinni, kærastanum hennar og dóttur hans sem hún þekkir ekkert þótt þær séu báðar í Kvennó. Þegar stelpurnar verða sannfærðar um að reimt sé í íbúðinni neyðast þær þó til að snúa bökum saman og komast að því hvað draugurinn vill þeim. Brátt eru þær komnar á blóði drifna slóð látinna unglingsstúlkna.
Barna- og unglingabækur Skáldsögur Spennusögur Ungmennabókmenntir (skáldverk) Ungmenni Íslenskar bókmenntir